Eitthvað Orangútan-baby til að koma manni í gott skap:

3 athugasemdir

Ég er kominn aftur til Íþöku, borgar fegurðar og kyrrðar. Það er nú bara gott að vera kominn aftur, þó viðskilnaðurinn við fjölskyldu og vini á Íslandi hafi verið óvenju tregablandinn í þetta skiptið. Ég veit í raun ekki hverju sætti, þar sem ég er búinn að ferðast fram og til baka núna í 6 skipti og þetta ætti að vera orðin rútína. Ég held persónulega að veðurblíðan og fegurðin sem landið geislar frá sér í slíkri veðráttu hafi átt stóran þátt í grátnum og gnístran tannanna. Nú það og svo náttúrulega yndisleikinn sem fólkið mitt hefur upp á að bjóða. Takk allir sem tóku þátt í Matti á Íslandi 2007.
Jæja, nóg komið af væmni og tími til kominn að horfa fram á veginn. Vegurinn er beinn að mestu og liggur fram á við í átt að Doktorsgráðu. Það má búast við að vegurinn hlykkjist eitthvað á leiðinni en vonin er sú að það verði minna um stórar nibbur í veginum sem gætu rekið upp undir. Hvað svo sem öllum myndlíkingum líður þá eru spennandi tímar í höfn og nú er ég þegar byrjaður að huga að doktorsverkefni sem og byrjaður á aukaverkefni einu sem snýr að kúamjólkurframleiðslu. Í sem fæstum orðum, á ég að skrifa forrit sem á að hjálpa mjólkurbændum í Ameríku að auka mjólkurframleiðslu. Þetta er eitthvað svakalega gourmet.
Annars er gaman frá því að segja að í dag var hið fínasta veður hérna vestan hafs; byrjaði látlaust með skýjafari og þægilegu hitastigi en breyttist síðan seinni partinn í glampandi sól og hita. Í morgun mætti ég til vinnu uppi í skóla um klukkan 9 eftir að hafa fengið mér fínan morgunverð. Ekki skemmdi fyrir andagiftinni að mæta prófessor Dynkin er hann var á leiðinni út úr stærðfræðibyggingunni, Malott Hall. Prófessor Dynkin er einn frægasti og mesti líkindafræðingur heimsins sem enn er á lífi og var nemandi Kolmogorovs, þess er fann upp líkindafræðina í nútímalegri mynd. Dynkin er 81. árs gamall og stundar enn rannsóknir; afkastamesti tími dagsins er að hans sögn frá 6-9 um morguninn sem gæti útskýrt ferðalag hans út úr Malott er ég var á leið inn. Það er svo merkilegt frá því að segja að nú nýverið gaf þessi gamli maður út margra binda doðrant með flóknum stærðfræðiformúlum og pælingum sem var nokkurs konar undirstöðuefni fyrir fólk að lesa til að það gæti skilið stærðfræðina í greinum sem hann ætlar að gefa út á næstu árum. Þetta er magnaður gaur! Hvað um það, mjög fylltist ég af andargift að sjá þennan meistara labba út úr byggingunni minni í morgunsárið og ég vonaði svona innra með mér að ég gæti hugsanlega komist nálægt því að verða næstum því nógu góður til að geta einn þúsundasta af því sem hann gat á sinni ævi. Maður lifir í voninni allavega.