Ísland, fagra Ísland
5 athugasemdir
Jæja, það er víst orðið svolítið síðan ég henti inn almennilegri færslu hérna. Það sem seinast var fréttnæmt héðan úr henni Ameríku var það að ég skrapp til Providence að heimsækja Emmu, Henning, Sölku og Kolku. Það var mjög notalegt og skemmtilegt og var spilað mikið Trivial og borðaður risastór kalkúnn sem var svo góður að mann langaði helst til að halda áfram að borða þangað til maður hreinlega dytti á gólfið. Ég þakka fjölskyldunni á Transit Street í Providence kærlega fyrir mikla og góða gestrisni og að sjálfsögðu líka fyrir skemmtunina!!!
Nýlegra er í fréttum að ég kláraði heimaprófið loksins á mánudagskvöld. Þetta var bæði langt og strembið próf og var mikill léttir að klára þetta af. Í tilefni þess að vera búinn með allt ákvað ég að skella mér til New York City þar sem ég nú er. Þannig er mál með vexti að vinkona mín úr Íþöku er að sækja um skóla hérna í henni New York og er í alls konar viðtölum. Hún hefur til umráða íbúð á meðan á dvölinni stendur og því var um að gera að nýta sér tækifærið, slappa aðeins af og versla áður en maður kemur loks heim. Ég verslaði buxur og tvennar peysur í dag og var það mjög vel. Það er nú eiginlega þannig með New York að maður getur ekki annað en sleppt aðeins fram af sér beislinu í verslunarefnum því úrvalið er alveg hreint ótrúlegt!
Ég keyrði frá Íþöku aðfararnótt þriðjudags og ég verð að segja það að það er alltaf jafnyndislegt að koma keyrandi og sjá borgarljósin blasa við sér í myrkrinu. Tja, það er eiginlega ekki hægt að segja að það sé alltaf “jafnyndislegt” því að ég verð að viðurkenna það að í þetta skiptið eftir að hafa verið þarna í sumar var það yndislegra heldur en nokkru sinni fyrr. Ég fékk alveg gleðihroll þegar ég keyrði í gegnum Lincoln Tunnel frá New Jersey inn á Manhattan eyjuna. Ég keyrði síðan yfir Queensborough bridge yfir til Queens þar sem ég sit núna og skrifa þetta blogg í algjöru chilli.
Mig langaði að lokum til að sýna ykkur hvað ég var að dunda mér við á Google Earth sem er alveg þrælsniðugt forrit sem hægt er að downloada. Ég útbjó annars vegar grafíska mynd af hvernig landið liggur milli mín og flestra ykkar sem lesa bloggið mitt. Reyndar eru nú alveg helmargir einhvers staðar úti um hvippinn og hvappinn þannig að... Einnig útbjó ég mynd af Manhattan eyjunni og hef merkt við nokkra staði. Þarna er til dæmis merkt við nákvæmlega hvar ég bjó í sumar með honum Helga og síðan hef ég merkt við Cornell bókasafnið þar sem ég lærði í allt sumar. Loks er merkt við Astoria í Queens þar sem ég er nákvæmlega staðsettur núna. Go figure!


